30 ára afmæli Flugmódelfélags Ak.
Fréttir - laugardagur 24.okt.09 23:59 - Lestrar 180 - Athugasemdir (0)
Laugardaginn 24. október verður haldið upp á 30 ára afmæli Flugmódelfélags Akureyrar, sem stofnað var á miðju sumri 1979. Öllum félögum, mökum, vinum og vandamönnum er boðið í hóf í Flugsafni Íslands laugardagskvöldið 24. október klukkan 20:00. Boðið verður upp á kökur, kaffi, snittur og hvítt. Eitthvað verður um módel á staðnum og gamlar myndir sem hægt verður að blaða í gegnum.
