Þorrablót Flugklúbbs Mosfellsbæjar
Fréttir - þriðjudagur 19.jan.10 11:44 - Lestrar 289 - Athugasemdir (0)
Hið árlega Þorrablót Flugklúbbs Mosfellsbæjar verður haldið laugardaginn 23 janúar næstkomandi.. Veislan hefst klukkan 20:00 í klúbbhúsinu á Tungubökkum. Verði er verulega stillt í hóf að vanda, eða aðeins 2500 kr. fyrir manninn fyrir bæði mat og drykk. Vinsamlega tilkynnið þáttöku til Sigurjóns, formadur@fkm.is eða í síma 899-6575 fyrir hádegi föstudaginn 22 janúar.
