Áhugaverður flugöryggisfundur með RNF
Fréttir - föstudagur 8.maí.09 20:01 - Lestrar 402 - Athugasemdir (0)
Um 30 manns mættu á vel heppnaðan flugöryggisfund RNF sem VFA stóð fyrir s.l. fimmtudag 7. mai í Flugskóla Akureyrar. Þeir Þorkell Ágústsson og Bragi Baldursson frá Rannsóknarnefnd flugslysa kynntu áhugasömum starfsemi RNF og fóru yfir nokkur flugatvik. Boðið var upp á pizzuveislu og fell það vel í kramið. Gengu menn fróðari á braut um verklag við flugslysarannsóknir og markmið rannsóknastarfsins. Þá er ávallt áhugavert fyrir flugmenn að fara yfir flugatvik og læra af reynslu annara.
